138. löggjafarþing — 135. fundur, 10. júní 2010.
starfskjör launafólks og skyldutrygging lífeyrisréttinda.
558. mál
Herra forseti. Ég styð þetta mál. Í mínum huga snýst þetta um að launþegar í landinu, algjörlega óháð því hjá hverjum þeir vinna, eigi rétt á símenntun og endurmenntun til jafns við aðra. Það er ekki í mínum huga mannréttindabrot, heldur þvert á móti. Þess vegna styð ég málið eindregið.