138. löggjafarþing — 137. fundur, 11. júní 2010.
mat á umhverfisáhrifum.
514. mál
Frú forseti. Sem fyrrverandi sveitarstjórnarmaður sem þekkir hvers konar verklag er í umhverfisráðuneytinu þegar mat á umhverfisáhrifum er annars vegar tel ég að frekar þurfi að beina sjónum að því að umhverfisráðuneytið lagfæri verklag sitt en Alþingi lengi fresti í þessu tilviki. Ég segi nei.