138. löggjafarþing — 144. fundur, 16. júní 2010.
erfðabreyttar lífverur.
516. mál
Frú forseti. Mig langaði bara að fagna því að komin er löggjöf um þetta mikilvæga málefni. Það er eiginlega skömm að því að við séum níu árum á eftir að setja löggjöf um erfðabreyttar lífverur. Ég skora á hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að taka í gegnum ráðuneyti sitt löggjöf er varðar merkingar á erfðabreyttum matvælum hið fyrsta. Það hefur legið inni í ráðuneytinu allt of lengi.