138. löggjafarþing — 149. fundur, 2. sept. 2010.
tilkynning um afsögn varaþingmennsku.
Borist hefur tilkynning frá 2. varamanni Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, Birni Ingimarssyni, bæjarstjóra á Fljótsdalshéraði, dagsett 30. júlí sl., þess efnis að hann segi af sér sem varaþingmaður fyrir flokkinn. Samkvæmt þessu færast varamenn flokksins neðar á listanum upp um eitt sæti.