140. löggjafarþing — 15. fundur, 1. nóv. 2011.
áfengislög.
136. mál
Hæstv. forseti. Það er ekki alveg rétt að ekki hafi verið látið á það reyna. Þessi mál hefur oft borið á góma á Alþingi, meðal annars hef ég flutt slíkt mál ásamt þeim þingmönnum sem ég vísaði til áðan. Það hefur alltaf verið kæft. Þetta hefur gerst trekk í trekk á undanförnum hálfum öðrum áratug. Þetta er engin nýlunda.
Ég er með einfalda spurningu: Vill hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir leyfa áfengisauglýsingar eða ekki?