151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

varamenn taka þingsæti.

[15:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Pírata um að Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykv. n., geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana 2. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Sara Elísa Þórðardóttir, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.

Sara Elísa Þórðardóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.