138. löggjafarþing — 153. fundur, 8. sept. 2010.
tilkynning um inngöngu í þingflokk.
Borist hefur eftirfarandi bréf:
„Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hefur í dag samþykkt ósk Þráins Bertelssonar, 9. þingmanns Reykjavíkurkjördæmis norður, um að ganga til liðs við þingflokkinn. Það tilkynnist hér með.
Alþingi, 8. september 2010.
F.h. þingflokks Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs,
Árni Þór Sigurðsson.“