142. löggjafarþing — 16. fundur, 28. júní 2013.
aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi.
9. mál
Virðulegi forseti. Þingflokkur Vinstri grænna mun ekki setja sig á móti því að ríkisstjórnin setji á fót starfshópa og vinnuhópa í kringum skuldavanda heimilanna á Íslandi. Allur þingflokkurinn mun sitja hjá í þessu máli og við afgreiðslu þess í heild sinni.