142. löggjafarþing — 17. fundur,  1. júlí 2013.

varamaður tekur þingsæti.

[12:02]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Bjartrar framtíðar um að 11. þm. Reykv. s., Óttarr Proppé, geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Bjartrar framtíðar í kjördæminu, Brynhildur S. Björnsdóttir. Kjörbréf Brynhildar hefur verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Brynhildur S. Björnsdóttir, 11. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]