142. löggjafarþing — 19. fundur, 2. júlí 2013.
tilkynning um skriflegt svar.
Forseti vill tilkynna að borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem óskað er frests við því að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 16, um málefni sparisjóða, frá Össuri Skarphéðinssyni. Er þess farið á leit við forseta að hann veiti ráðuneytinu lengri frest þar sem ekki næst að afla nauðsynlegra upplýsinga innan 15 virkra daga.