146. löggjafarþing — 19. fundur, 26. jan. 2017.
breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
68. mál
Virðulegi forseti. Vegna þess að við erum að ræða breytta skipan ráðuneyta og vísað var í forsetaúrskurð um skiptingu málaflokka vona ég að ég sé ekki sem nýliði hér á þingi að fara of gróflega út fyrir þingsköp með því að nota tækifærið til að spyrja hæstv. forsætisráðherra af einskærri forvitni og í vinsemd hvers vegna lagt sé til í forsetaúrskurðinum að Seðlabanki Íslands sé færður undir forsætisráðuneytið í stað fjármálaráðuneytisins.