stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram munu fara umræður um hana, sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu.
Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir, átta mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri umferð og fjórar mínútur í þriðju umferð, en forsætisráðherra hefur 16 mínútur til framsögu.
Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:
Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Samfylkingin, Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Flokkur fólksins og Viðreisn.
Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í fyrstu umferð, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í annarri umferð og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, í þriðju umferð.
Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Logi Einarsson, 5. þm. Norðaust., í annarri umferð Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, 10. þm. Norðaust., og Ágúst Ólafur Ágústsson, 3. þm. Reykv. s., í þriðju umferð.
Ræðumenn Miðflokksins verða í fyrstu umferð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 3. þm. Norðaust., Sigurður Páll Jónsson, 8. þm. Norðvest., í annarri umferð og Bergþór Ólason, 4. þm. Norðvest., í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokkinn verða Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra í fyrstu umferð, Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra í annarri umferð og Haraldur Benediktsson, 1. þm. Norðvest., í þriðju umferð.
Fyrir Pírata tala Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, Smári McCarthy, 10. þm. Suðurk., í annarri umferð og Jón Þór Ólafsson, 8. þm. Suðvest., í þriðju.
Fyrir Framsóknarflokkinn tala Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í fyrstu umferð, í annarri umferð Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Fyrir Flokk fólksins tala í fyrstu umferð Inga Sæland, 8. þm. Reykv. s., í annarri Ólafur Ísleifsson, 10. þm. Reykv. n., og í þriðju umferð Karl Gauti Hjaltason, 8. þm. Suðurk.
Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrstu umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðvest., í annarri Þorsteinn Víglundsson, 7. þm. Reykv. n., og í þriðju umferð Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykv. s.