142. löggjafarþing — 20. fundur, 3. júlí 2013.
Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
11. mál
Hæstv. forseti. Ég var ekki stödd hérna fyrir fjórum, fimm eða sex mánuðum en þau rök og þær niðurstöður sem ég hef séð sannfærðu mig. Pólitík getur komið inn hvar sem er og hvíslað í eyru. Ég tel að með þessu frumvarpi verði hægt að setja skilyrði um lýðræðisleg vinnubrögð sem beðið er um í þjóðfélaginu og segi ég því já, herra forseti.