139. löggjafarþing — 21. fundur, 5. nóv. 2010.
minnst Jónatans Motzfeldts.
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, fer til Grænlands í dag og verður fulltrúi Alþingis við útför Jónatans Motzfeldts í Nuuk.
Jónatan Motzfeldt var leiðtogi Grænlendinga um árabil, formaður landsstjórnarinnar lengi og síðar forseti grænlenska landsþingsins.
Héðan frá Alþingi sendum við fjölskyldu Jónatans Motzfeldts, og Grænlendingum öllum, hlýjar kveðjur á útfarardegi hans.