145. löggjafarþing — 21. fundur, 15. okt. 2015.
tilkynning um skrifleg svör.
Borist hafa tvö bréf frá velferðarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 165, um sérhæfð úrræði fyrir börn, frá Heiðu Kristínu Helgadóttur, og fyrirspurn á þskj. 124, um þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir, einnig frá Heiðu Kristínu Helgadóttur.