145. löggjafarþing — 22. fundur,  19. okt. 2015.

tilkynning um skrifleg svör.

[15:05]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hafa tvö bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 125, um stóriðju og orkuverð, frá Vigdísi Hauksdóttur, og fyrirspurn á þskj. 176, um samþjöppun aflaheimilda og veiðigjald, frá Oddnýju G. Harðardóttur.

Einnig hefur borist bréf frá velferðarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 111, um endurgreiðslur vegna gleraugnakaupa, frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.

Borist hefur bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 118, um nám og námsefni heyrnarlausra barna, frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.