154. löggjafarþing — 22. fundur,  6. nóv. 2023.

staðfesting kosningar.

[15:11]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu Sigurðar Tyrfingssonar sem 2. varaþingmanns á lista Flokks fólksins í Suðvesturkjördæmi. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosninguna og kjörgengið og mælir hún einróma með staðfestingu kosningar Sigurðar Tyrfingssonar.