143. löggjafarþing — 24. fundur, 18. nóv. 2013.
náttúruvernd.
167. mál
Hæstv. forseti. Í dag erum við með nokkuð góðan kortagrunn. Ég hef keyrt talsvert mikið á hálendi Íslands, uppi á Vatnajökli. Tökum bara Þeistareykjasvæðið sem dæmi, þar er gríðarlega góður kortagrunnur. Það breytir því ekki að menn keyra engu að síður utan vegar þannig að kortagrunnurinn sem slíkur kemur ekki í veg fyrir utanvegaakstur.