152. löggjafarþing — 27. fundur,  26. jan. 2022.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:00]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hafa borist bréf frá félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra þar sem hann óskar eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 110, um greiðslur Tryggingastofnunar til eldri borgara, frá Óla Birni Kárasyni, og við fyrirspurn á þskj. 128, um tekjutryggingu almannatrygginga, frá Birni Leví Gunnarssyni.