154. löggjafarþing — 27. fundur,  9. nóv. 2023.

minning þeirra Íslendinga sem fórust í seinni heimsstyrjöldinni.

80. mál
[15:19]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um að heiðra minningu þeirra Íslendinga sem fórust í seinni heimsstyrjöldinni. Ásamt þeim sem hér stendur eru á málinu hv. þingmenn Óli Björn Kárason, Birgir Þórarinsson, Ásmundur Friðriksson, Jón Gunnarsson, Oddný G. Harðardóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Dagbjört Hákonardóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson.

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að setja annars vegar fram áætlun um að heiðra á varanlegan hátt minningu þeirra Íslendinga sem fórust í seinni heimsstyrjöldinni og hins vegar áætlun um undirbúning minningarathafnar sem fram fari árið 2025. Ríkisstjórnin hafi samráð við sérfræðinga við gerð áætlananna sem verði bornar undir Alþingi í formi þingsályktunartillögu eigi síðar en í apríl 2024.

Þessi þingsályktunartillaga hefur verið lögð fram fjórum sinnum áður og því er hún hér lögð fram í fimmta sinn. Hún er lögð fram að nýju lítið breytt.

Þrátt fyrir herleysi Íslands fóru Íslendingar ekki varhluta af því mannfalli sem átök seinni heimsstyrjaldarinnar höfðu í för með sér. Siglingar voru landinu lífsnauðsyn því að flytja þurfti afurðir landsins út og birgja landið að hvers kyns nauðsynjum á stríðsárunum. Þá jókst verðmæti og mikilvægi útflutnings sjávarafurða gríðarlega. Jafnframt leiddi herseta Breta og síðar Bandaríkjamanna til þess að íslensk skip voru að einhverju leyti í þjónustu þeirra og skiptu miklu máli í baráttunni fyrir frelsi Evrópu og heimsins alls. Mikilvægi íslenska skipaflotans fólst þó ekki síst í útflutningi á afurðum landsins. Siglingar á hafsvæðinu í kringum Ísland voru því tíðar og má rekja megnið af mannfalli Íslendinga á stríðsárunum til árekstra og árása á íslenska skipaflotann þar þótt allnokkur íslensk skip hafi farist langt frá Íslandsströndum.

Við Íslendingar og bandamenn allir stöndum í þakkarskuld við þá sem lögðu líf sitt að veði í þessum siglingum fullkomlega meðvitaðir um áhættuna. Fórnir þeirra sem fórust voru miklar og er löngu tímabært að heiðra minningu þeirra líkt og lagt er til í þingsályktunartillögu þessari. Flutningsmenn telja viðeigandi að Alþingi samþykki að heiðra varanlega minningu þeirra sem fórust og að sérstök minningarathöfn verði haldin árið 2025 þegar þess verður minnst að 80 ár eru frá því að seinni heimsstyrjöldinni lauk.

Fyrir liggja heimildir um þann fjölda Íslendinga sem lést á stríðsárunum þótt heildartalan ráðist nokkuð af því hvað er álitið flokkast undir fall af völdum stríðsátaka. Í sumum tilvikum skortir upplýsingar um ástæður þess að skip fórust. Þó liggja fyrir tilgátur sérfræðinga sem hafa rannsakað þessa sögu og skráð heimildir. Má þar nefna Þór Whitehead sem gaf út verkið Ísland í hers höndum árið 2002. Gunnar M. Magnúss tók saman verkið Virkið í norðri III sem var endurútgefið með breytingum og viðbótum árið 1984 af Helga Haukssyni. Þar er yfirlit yfir alla Íslendinga sem létust af völdum stríðs. Af þessum heimildum má álykta að í það minnsta 153 Íslendingar hafi látist vegna árása á skip sem þeir voru á eða árekstra skipanna við tundurdufl. Um er að ræða íslensk skip og erlend skip sem höfðu íslenska skipverja um borð. Þetta eru 0,13% af íbúafjölda hér á landi miðað við manntal í lok árs 1940, en þá voru 121.474 íbúar á Íslandi. Þessu til viðbótar fórust 58 á tveimur skipum, Sviða og Max Pemberton, sem líkur standa til að hafi tengst árekstrum við tundurdufl. Einnig er gert ráð fyrir þeim sem féllu á Íslandi á stríðsárunum fyrir hendi bandarískra hermanna. Heildarfjöldi Íslendinga sem féll af völdum stríðsátaka var því um 211 eða 0,17% af íbúafjölda landsins í lok árs 1940. Það er áhugavert að skoða þessar tölur í samanburði við hlutfallslegt mannfall annarra þjóða. Lauslegar tölur til samanburðar sýna að sem hlutfall af heildarfjölda íbúa er þetta sambærilegt mannfalli Dana og mun meira en mannfall Svía. Bandaríkin misstu um 0,2% af heildarfólksfjölda sínum í stríðinu, Kanada missti 0,4%, Bretland 0,7% og Frakkland 1,5%.

Eins og áður hefur komið fram eru nokkuð góðar heimildir til um þá Íslendinga sem féllu af völdum stríðsátaka. Þetta hefur þó ekki verið fullrannsakað og vera má að þessar tölur breytist eitthvað við frekari rannsóknir fræðimanna á skráðum orsökum dauðsfalla á þessum viðsjárverðu tímum. Í ritinu Virkið í norðri III eru þeir Íslendingar sem heimildir eru til um að hafi látist af völdum stríðsins taldir upp og fylgir sá ítarlegi listi greinargerðinni með þingsályktunartillögunni. Hann er hægt að nálgast á vef Alþingis.

Herra forseti. Ekki er fyrir að fara neinum varanlegum minnisvarða um alla þá Íslendinga sem taldir eru upp á lista þessum en minnismerki hafa verið um þá sem hafa látist á einstaka skipum. Um tíma var minnismerki á Sjóminjasafninu um þá sem fórust með Dettifossi og Goðafossi og upplýsingaspjöld á vegum Faxaflóahafna við Miðbakka í Reykjavík með yfirliti yfir öll skip sem farist hafa við Íslandsstrendur, m.a. á stríðsárunum. Í einhverjum tilfellum eru grafreitir erlendra manna sem fórust við Ísland sérstaklega merktir. Það er því löngu tímabært að skipa þeim sem létu lífið í seinni heimsstyrjöldinni varanlegan sess í sögu þjóðarinnar.

Með hvaða hætti slíkt verður best gert skal nánar útfært af ríkisstjórn í samráði við sérfræðinga sem starfa t.d. á sviði sagn- eða safnafræði. Víða í Evrópu, til að mynda í Frakklandi, hafa minnismerki um fallna verið reist í þeim bæjum sem viðkomandi einstaklingar voru frá, t.d. við kirkjur eða í kirkjugörðum. Einnig hefur verið farin sú leið að reisa styttu eða listaverk sem minnisvarða þar sem nöfn allra þeirra sem létust eru talin upp, eins og gert er á Víetnam-minnismerkinu í Washington D.C. Loks hafa margar þjóðir farið þá leið að tileinka árlega sérstakan dag minningu þessa fólks.

Að lokum, herra forseti, tel ég þetta mikilvægt mál og þarft. Ég vonast til þess að það fái framgöngu hér í þinginu og legg til að það gangi til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.