142. löggjafarþing — 28. fundur,  16. sept. 2013.

umfjöllun nefnda um skýrslu um Íbúðalánasjóð.

[15:08]
Horfa

Valgerður Gunnarsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég sat fund fjárlaganefndar í morgun. Þessi skýrsla var ekki þar til umræðu. Hún lá þar ekki frammi. Það var enginn frá rannsóknarnefndinni þar til að fjalla um hana. Það var verið að ræða um málefni Íbúðalánasjóðs á allt öðrum grunni.