138. löggjafarþing — 29. fundur, 19. nóv. 2009.
ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
76. mál
Forseti vekur athygli á því að þingstörfin ganga hér í samræmi við það sem ákveðið var fyrr í dag og sem forseti ákvað á fundi með þingflokksformönnum, einnig fyrr í dag.
Forseti vill líka geta þess að fyrr í kvöld var óskað eftir því að kannað yrði hvort hæstv. forsætisráðherra gæti komið í hús samkvæmt beiðni og forseti veit ekki annað en að það hafi verið reynt en ekki tekist.