152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

kosning ellefu þingmanna úr öllum þingflokkum í framtíðarnefnd skv. ákvæði til bráðabirgða IV við þingsköp.

[11:26]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Mér hefur borist einn listi sem á eru nöfnin: Ágúst Bjarni Garðarsson, Bergþór Ólason, Halldóra Mogensen, Hildur Sverrisdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Logi Einarsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Orri Páll Jóhannsson, Sigmar Guðmundsson og Steinunn Þóra Árnadóttir.

Þar sem ekki eru fleiri tilnefndir en kjósa skal lýsi ég áður talda þingmenn réttkjörna í framtíðarnefnd.