136. löggjafarþing — 32. fundur,  20. nóv. 2008.

fjárhagsleg fyrirgreiðsla hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

161. mál
[18:40]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ítreka það sem ég sagði áðan: Ég treysti flokkunum, Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu, til að leiða þjóðina út úr þeim vanda sem við blasir. Ég treysti ekki núverandi stjórn Seðlabankans til þess.