149. löggjafarþing — 33. fundur, 19. nóv. 2018.
breyting á starfsáætlun.
Forseti vill tilkynna um þá breytingu á starfsáætlun sem samþykkt var á fundi forsætisnefndar og með formönnum þingflokka nú í morgun, að nefndadagur sem áætlaður var miðvikudaginn 28. nóvember færist yfir á föstudaginn 30. nóvember. Er það gert til að þingmenn geti tekið þátt í heimsþingi kvenleiðtoga sem haldið verður í Hörpu dagana 26.–28. nóvember nk.