154. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2023.

aðgerðaáætlun til að efla Sjúkrahúsið á Akureyri.

83. mál
[14:45]
Horfa

Flm. (Ingibjörg Isaksen) (F):

Virðulegi forseti. Ég endurflyt hér tillögu mína til þingsályktunar um aðgerðaáætlun til að efla Sjúkrahúsið á Akureyri. Tillagan var áður lögð fram á 153. löggjafarþingi og er nú endurflutt óbreytt en tillögugreinin hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að skipa starfshóp sem hafi það hlutverk að móta stefnu og aðgerðaáætlun til að efla Sjúkrahúsið á Akureyri með tilliti til vísinda og mennta. Samhliða því markmiði verði stuðlað að bættri heilbrigðisþjónustu á upptökusvæði sjúkrahússins ásamt því að laða að sérhæft heilbrigðisstarfsfólk. Starfshópurinn leggi áherslu á eftirfarandi:

1. Samstarf við Landspítala og tengdar menntastofnanir verði aukið með það að markmiði að veita Sjúkrahúsinu á Akureyri viðurkenningu á verkefnum tengdum háskólasjúkrahúsi.

2. Staða Sjúkrahússins á Akureyri í rannsóknum, þróun og kennslu verði styrkt. Starfshópurinn kostnaðargreini og meti ávinning af þeim tillögum sem lagðar eru fram.

Ráðherra leggi niðurstöður starfshópsins fyrir Alþingi eigi síðar en 1. september 2024.“

Meðflutningsmenn á þessari tillögu minni eru hv. þingmenn Þórarinn Ingi Pétursson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Logi Einarsson, Hanna Katrín Friðriksson og Björn Leví Gunnarsson ásamt Njáli Trausta Friðbertssyni.

Sjúkrahúsið á Akureyri gegnir mikilvægu hlutverki á landsbyggðinni en það veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. Það er annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum. Sjúkrahúsið á Akureyri hefur fengið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni, fyrst heilbrigðisstofnana á Íslandi ásamt öðrum vottunum.

Virðulegi forseti. Mönnun fagfólks í heilbrigðiskerfinu verður sífellt meira krefjandi og nauðsynlegt er að leita nýrra leiða við að mennta og þjálfa heilbrigðisstarfsfólk ásamt því að auka tækifæri til náms. Með auknum verkefnum, aukinni vísindastarfsemi og fleiri nemum er líklegra að það gangi betur að laða sérhæfða starfsmenn til Sjúkrahússins á Akureyri og veita þannig betri heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Flutningsmenn telja að færa mætti aukin verkefni yfir á Sjúkrahúsið á Akureyri og leggja því til að skipaður verði starfshópur sem hafi það verkefni að móta stefnu og aðgerðaáætlun til þess að ná þeim markmiðum fram. Með aukinni samvinnu við Landspítala og viðeigandi menntastofnanir má byggja enn frekar upp öflugt nám á sviði heilbrigðisvísinda á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Í dag er í boði fjölbreytt nám í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri sem efla mætti frekar með auknu samstarfi við aðra háskóla. Á Sjúkrahúsinu á Akureyri er starfandi deild mennta og vísinda sem sér um skipulag, umsjón og eftirlit með því sem lýtur að menntun og vísindum þvert á allar starfseiningar sjúkrahússins. Meðal verkefna deildarinnar er að skipuleggja starfsnám háskólanema og framhaldsskólanema í heilbrigðisgreinum auk þess að hafa umsjón með skipulagi sérnámsgrunnslækna, sérnámslækna og annarra nema í sérnámsstöðum. Sjúkrahúsið á Akureyri hefur um langt árabil annast starfsnám háskólanema í grunnnámi við HA, HÍ og við erlenda háskóla en auk þess annast það sérnám heilbrigðisstétta að fenginni háskólagráðu í heilbrigðisvísindum. Á Sjúkrahúsinu á Akureyri er mögulegt að ljúka öllum sjúkrahúsmánuðum sérnámsgrunnsársins. Sérnámslæknar í heimilislækningum og meistaranemar í geðhjúkrun geta einnig lokið sjúkrahúshlutanum á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Annað sérnám er skipulagt í samstarfi við LSH. Vísindastarf fer vaxandi og ákveðnir starfsmenn sjúkrahússins sem uppfylla hæfnikröfur háskóla gegna störfum prófessora, dósenta og lektora við HA og HÍ. Enn fremur er virkt vísindasamstarf við erlenda háskóla og háskólasjúkrahús.

Virðulegi forseti. Það að efla enn frekar hlutverk Sjúkrahússins á Akureyri þegar kemur að menntun heilbrigðisstarfsmanna er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Í kaflanum um menntamál kemur fram, með leyfi forseta:

„Meta þarf mönnunarþörf til lengri tíma í heilbrigðis- og menntakerfinu og skoða í því samhengi hvort breyta þurfi starfsumhverfi og fyrirkomulagi grunnmenntunar til að mæta vaxandi þörf til framtíðar, m.a. með hliðsjón af aðstæðum í dreifðum byggðum.“

Þá segir í heilbrigðisstefnu til 2030 að styrkja þurfi hlutverk Sjúkrahússins á Akureyri til þess að efla hlutverk þess sem kennslusjúkrahús ásamt því að auka samvinnu við Háskólann á Akureyri.

Flutningsmenn telja mikilvægt að styrkja stöðu Sjúkrahússins á Akureyri sem kennslusjúkrahúss og skoða hvort forsendur séu til staðar til að skilgreina það og viðurkenna hlutverk þess sem háskólasjúkrahúss. Greina þarf hvort aðstaða og innviðir séu til staðar á sjúkrahúsinu til þess að ráðast í aukin verkefni á þessu sviði og hvernig samstarfi við aðrar stofnanir yrði háttað. Mér skilst á starfsfólki Sjúkrahússins á Akureyri að sú vinna sé nú þegar hafin að einhverju leyti, af þeirra hálfu a.m.k. Á sama tíma stendur íslenskt heilbrigðiskerfi frammi fyrir alvarlegum mönnunarvanda en fyrirséð er að fjölga þurfi verulega starfsmönnum í heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Á meðan erfitt er að taka á móti fleiri nemum á LSH getur Sjúkrahúsið á Akureyri tekið að sér fleiri nema og stærri verkefni, en svo að það sé mögulegt verður að veita aukið fjármagn til verkefnisins.

Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 er fjallað um í kaflanum „Hugsað til framtíðar“ hvort gera megi breytingar á fyrirkomulagi grunnmenntunar heilbrigðisstarfsfólks til að mæta betur þörfum íslensks heilbrigðiskerfis og skipulagi þjónustunnar um allt land, t.d. með því að taka betur tillit til aðstæðna í hinum dreifðum byggðum. Þar er tekið dæmi um svæðissjúkrahúsið í Tromsö í Noregi sem fékk stöðu háskólasjúkrahúss eftir að háskólinn á svæðinu var settur á fót á grundvelli byggðasjónarmiða. Í skilgreiningu á þriðja stigs heilbrigðisþjónustu segir m.a. að starfsemi háskólasjúkrahúss sé ekki bundin við hús eða byggingar heldur geti hún farið fram á mörgum stöðum og á fleiri en einni stofnun að uppfylltum þeim skilyrðum sem þarf um háskólasjúkrahús. Flutningsmenn telja mikilvægt að skoðuð verði af fullum þunga öll þau verkefni sem Sjúkrahúsið á Akureyri gæti tekið að sér sem falla undir skilgreiningu háskólasjúkrahúss og létt um leið álaginu á LSH. Flutningsmenn eru meðvitaðir um að oft sé verið að vinna með færri sjúklinga á sjúkrahúsinu en alþjóðaviðmið segja til um varðandi stærð háskólasjúkrahúsa en það eigi einnig við annars staðar á Íslandi þar sem þjóðin er fámenn og umhverfisaðstæður oft óhagstæðar og langt á milli staða. Í dag eru allar helstu sérgreinar og meðferðir í tengslum við þær á Sjúkrahúsinu á Akureyri, auk þess sem það sinnir meðferðum í flestum undirsérgreinum viðkomandi sérgreina. Nú þegar er til staðar góð samvinna við LSH með þeim hætti að ýmsir sérfræðingar koma að vinnu á Sjúkrahúsinu á Akureyri með tilheyrandi sparnaði á ferðakostnaði fyrir bæði sjúklinga sem og Sjúkratryggingar Íslands. Í því samhengi má einnig nefna að nýlega er hafin starfsemi blóðskilunar sem unnin er í samstarfi við LSH sem sparar bæði fjármagn og ferðalög fyrir sjúklinga.

Öflug starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri sem háskólasjúkrahúss leiðir til þess að heilbrigðisþjónusta á Norður- og Austurlandi verður betri en í heilbrigðisstefnu til 2030 er einmitt lögð áhersla á bætta þjónustu. Sérfræðingar frá sjúkrahúsinu fara nú þegar og hitta sjúklinga innan annarra starfsstöðva heilbrigðisstofnana á svæðinu og gæti sú þjónusta aukist enn frekar með tilkomu háskólasjúkrahúss. Góð og metnaðarfull heilbrigðisþjónusta eins og Sjúkrahúsið á Akureyri sinnir vissulega en hefur möguleika á að veita í auknum mæli ef rétt er gefið bætir búsetuskilyrði og heilbrigðisþjónustu á svæðum sem sum eiga undir högg að sækja. Flutningsmenn telja ákaflega mikilvægt að styrkja stöðu Sjúkrahússins á Akureyri til þess að efla starfsemina og einnig styrkja heilbrigðisþjónustu á Norður- og Austurlandi, eins og ég sagði hér áður, og jafna búsetutækifæri á landsbyggðinni. Ein ástæða þess að fólk flytur úr dreifbýli er að það getur ekki sótt menntun í heimabyggð. Önnur ástæða er að starfstækifæri skortir hreinlega í heimabyggð. Með því að auka starfstækifæri í tengslum við styrkingu Sjúkrahússins á Akureyri og efla tækifæri til menntunar og vísinda við Háskólann á Akureyri er hægt bæði að halda fólki á svæðinu sem og laða aðra að.

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða umfangsmikið verkefni sem telja má við fyrstu sýn að geti aðeins falið í sér verulega kostnaðaraukningu fyrir ríkið. Flutningsmenn telja mikilvægt að við kostnaðargreiningu á þessari vinnu verði ekki einungis litið til fjárhagslegs kostnaðar heldur einnig til þess sem sparast hjá m.a. Sjúkratryggingum vegna minni ferðakostnaðar. Þá þarf einnig að líta til fleiri þátta líkt og aukinna möguleika til náms, fjölgunar heilbrigðisstarfsmanna, ávinnings af samvinnu, samfélagslegs ávinnings, aukinnar hagkvæmni, betri þjónustu við sjúklinga, aukinna afkasta o.s.frv. Hér er einnig um mikilvægt byggða- og öryggismál að ræða sem mun hjálpa til við að fjölga heilbrigðisstarfsfólki á landsbyggðinni.

Ég hef nú gert grein fyrir efni tillögunnar og legg til að henni verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og síðari umræðu.