138. löggjafarþing — 37. fundur, 4. des. 2009.
ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
76. mál
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir svörin svo langt sem þau ná. Við vitum sem sagt eftir þetta svar að fundur mun hefjast kl. 10.30 í fyrramálið og þar af leiðandi getum við dregið þá ályktun að þessum þingfundi verði a.m.k. lokið fyrir kl. 10.30 í fyrramálið.