Bráðabirgðaútgáfa.
152. löggjafarþing — 37. fundur, 10. feb. 2022.
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
332. mál
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Svörin geta verið nokkuð stutt vegna þess að gagnrýnin getur verið nokkuð almenn. Það liggur ekki fyrir hjá þingflokki Framsóknar hver nákvæmlega gagnrýnin er. Hvað varðandi óskalista Framsóknar um virkjunarkosti þá liggur hann ekki fyrir.