Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2022.

lögfræðiálit lífeyrissjóðanna um ÍL-sjóð.

[11:15]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Forseti. Í gær lásum við fréttir af því að þeir lífeyrissjóðir sem eiga í svokölluðum samningaviðræðum við fjármálaráðherra um ÍL-sjóð hafi látið vinna lögfræðiálit. Lögfræðiálitið, myndi ég segja á kjarnyrtri íslensku, slátrar málflutningi fjármálaráðherra í máli þessu. Það er auðvitað umhugsunarvert og ætti að vera umhugsunarvert fyrir Sjálfstæðismenn ekki síst að það sé verið að tala um það að atlagan að eignarréttindum sé með þeim hætti að hún fari í bága við stjórnarskrá og mannréttindasáttmála, að fjármálaráðherra í þessari ríkisstjórn sitji og föndri þannig fjármálagerninga að eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar er kippt úr sambandi. Ég nefni þetta í samhengi við það að fyrir lá ósk mín um að þingið léti vinna lögfræðiálit vegna þessa máls fjármálaráðherra sem hann hefur boðað hingað inn í þingsal öðru hvorum megin við jól. Því var hafnað eins og svo mörgu sem stjórnarandstaðan biður um. Kannski var ástæðan sú að það blasti við að niðurstaðan yrði þessi. Ríkisstjórnin er rangstæð gagnvart stjórnarskrá Íslands samkvæmt þessu áliti.