151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[16:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Líkt og kemur fram í heiti frumvarpsins er þetta frumvarp til laga um breytingar á lögum um kynrænt sjálfræði og fjallar um ódæmigerð kyneinkenni. Hér er verið að fjalla um þau sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni. Það var það sem nefndin hélt sig við og fjallaði um í meðferð sinni á málinu.