151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[14:26]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Við ræðum hér versta mál þessarar ríkisstjórnar, dæmigert merkimiðastjórnmál sem er eingöngu rætt út frá heiti og yfirlýstum markmiðum en ekki innihaldi og afleiðingum. Þess vegna höfum við heyrt hér hástemmd öfugmæli um mannréttindi og annað sem eru í raun þversagnir þegar þetta mál er skoðað. Þetta snýst ekki um að vernda intersex fólk og það snýst ekki um trans fólk. Þetta snýst um að svipta börn sjálfsögðum og lífsbætandi lækningum sem framkvæmdar hafa verið með góðum árangri, jafnvel áratugum saman. Rökstuðningurinn er oft og tíðum farsakenndur, jafnvel vísað í alþjóðasáttmála gegn pyndingum til að réttlæta það að börn fái ekki heilbrigðisþjónustu. Með þessu er verið að gefa til kynna að mörg hundruð foreldrar og læknar hafi á undanförnum árum og áratugum brotið rétt á börnum sínum með því að veita þeim aðgerðir eða aðrar lækningar sem hafa verulega bætt lífsgæði þeirra fyrir lífstíð. Það er ótrúlegt að svona forneskjulegt og öfgafullt mál skuli keyrt hér í gegn á Alþingi árið 2020.