151. löggjafarþing — 39. fundur, 16. des. 2020.
jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku.
336. mál
Virðulegi forseti. Já, þetta er mikilvægt skref. Þó að það sé ekki nándar nægilega fullkomið er þetta mikilvægt skref í þá veru að treysta byggð í landinu á forsendum réttlætis, á forsendum jöfnunar þannig að Viðreisn styður þetta mál um leið og hún hvetur ríkisstjórnina til þess að halda áfram í þá veru að byggja upp innviði fyrir fólkið okkar, hvar sem það er statt á landinu.