155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:57]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Ráðherrann kom inn á það að sumt hafi gengið vel, annað hafi gengið verr. Ef ráðherrann myndi nú kannski tilgreina þrjú, fjögur atriði sem hann hefur mestar áhyggjur af þeim megin í matinu þar sem verr hefur gengið en hann vildi sjá vera raunina.