149. löggjafarþing — 40. fundur, 3. des. 2018.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá Lilju Alfreðsdóttur um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Líkt og tilkynnt var á vef Alþingis tók Alex B. Stefánsson, 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana fimmtudaginn 29. nóvember.
Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.