Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 41. fundur,  5. des. 2022.

staðfesting kosningar.

[15:01]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu Andrésar Skúlasonar sem 3. varaþingmanns á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi norður. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosningu og kjörgengi hans og mælir einróma með staðfestingu á kosningu Andrésar Skúlasonar.