151. löggjafarþing — 43. fundur,  18. des. 2020.

þingfrestun.

[22:40]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 151. löggjafarþings, frá 18. desember 2020 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 18. janúar 2021.

Gjört á Bessastöðum, 17. desember 2002.

Guðni Th. Jóhannesson.

 

_______________

Katrín Jakobsdóttir.

Forsetabréf um frestun fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 151. löggjafarþings, er frestað.

Ég vil þakka hv. alþingismönnum og starfsfólki Alþingis fyrir gott samstarf það sem af er þessum skrýtna og óvenjulega þingvetri og óska ykkur öllum sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.