Fjáraukalög 2004.
Frsm. meiri hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (F):
Hæstv. forseti. Frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2004 kemur nú til 3. umr. Fjárlaganefnd hefur fjallað um málið eftir 2. umr. og fékk fulltrúa fjármálaráðuneytisins til fundar við sig. Fjármálaráðuneytið lét í té áður umbeðnar upplýsingar um fjárhagsstöðu A-hluta stofnana miðað við lok september sl., þ.e. fyrir fyrstu níu mánuði ársins og var farið yfir þær upplýsingar.
Hæstv. forseti. Meiri hluti fjárlaganefndar gerir engar frekari tillögur til breytinga á frumvarpinu eins og það liggur fyrir eftir 2. umr. og skilar þinginu því ekki framhaldsnefndaráliti.