150. löggjafarþing — 47. fundur, 17. des. 2019.
sviðslistir.
276. mál
Virðulegi forseti. Ég fagna þeirri lagasetningu sem við erum að ganga í. Þetta er mikið heillaskref og er til þess fallið að efla menningarlíf í landinu, enda hafa sviðslistir verið í mikilli sókn. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir mjög gott starf og einnig þeim fjölmörgu sem hafa komið að vinnslu þessa frumvarps.