Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 48. fundur,  13. des. 2022.

almannatryggingar.

568. mál
[15:16]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Vegna athugasemda hv. þingmanns vill forseti taka það fram að það er auðvitað ekki óþekkt og kannski alsiða hér í þingsal að menn gagnrýni aðra hv. þingmenn fyrir óheiðarlegan málflutning eða þess háttar. En þegar sagt er að viðkomandi sé óheiðarlegur stjórnmálamaður eða óheiðarleg manneskja þá hrekkur forseti við. Það var það sem forseti taldi ástæðu til að gera athugasemdir við.