138. löggjafarþing — 49. fundur, 17. des. 2009.
stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
82. mál
Virðulegi forseti. Ég vil nýta tækifærið og óska Alþingi til hamingju með þetta frumvarp. Hér er verið að stíga gott skref til að styrkja nýsköpun í landinu, stuðla að verðmætaaukningu og fjölgun starfa. Hér er verið að spila sóknarleik í íslensku atvinnulífi í tíð ríkisstjórnar Vinstri grænna og Samfylkingar.