151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

störf þingsins.

[10:35]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Í umræðum um fjármálaáætlun í gær varð fjármálaráðherra rosalega fúll yfir því að ég var að spyrja hann út í formið og fannst það ekki nægilega praktísk umræða. Það er mjög kaldhæðnislegt miðað við að hann var fjármálaráðherra þegar form laga um opinber fjármál var samþykkt. Fjármálaráðherra hefur kvartað yfir þessu áður og að það þurfi tíma til að innleiða verkferlana sem lögin kveða á um. En lögin eru eins og þau eru. Allir frestir sem voru byggðir inn í lögin eru útrunnir. Ef það þarf tíma til að innleiða lögin þá á fjármálaráðherra einfaldlega að mæta til þingsins með rökstudda breytingu á lögunum.

Fjármálaráðherra er líka á hálum ís þegar hann gagnrýnir umræðu um formið með þeim rökum að það sé ekki enn búið að innleiða ferla til að fara eftir forminu. Það er einhvers konar hringavitleysa þar á ferð sem ég átta mig ekki alveg á.

Málið er auðvitað að umræðan um formið er mikilvæg. Það vantar mikilvægar upplýsingar frá framkvæmdarvaldinu varðandi stefnu stjórnvalda og fyrirkomulag fjárheimilda. Ég geri það ekki að gamni mínu að spyrja um formið nema þegar það er mikilvægt. Ég er t.d. ekki að kvarta yfir dómsmálaráðherra um að prestar mæti ekki tvisvar á ári á öll heimili landsins eins og tilskipun um húsvitjanir kveður á um.

Staðreyndin er einfaldlega sú að fjármálaráðherra fer ekki eftir lögum um opinber fjármál, eins og hann viðurkenndi með orðum sínum um að ekki væri búið að innleiða alla verkferla vegna laganna. Þeim flokki sem fjármálaráðherra þjónar finnst nefnilega mjög gott að geta gripið til orðanna „ekkert ólöglegt var gert“ og vælir auðvitað þegar bent er á að ekki sé verið að fara eftir lögum.

En ekki er allur skaðinn skeður enn. Nú getur þingið krafist þess enn og aftur að fá þau gögn sem upp á vantar til þess að sé hægt að taka tillit til þeirra í nefndarvinnunni. Ég býst ekki við miklum árangri enda hefur verið spurt um þetta áður án þess að svör hafi borist. Það er líka lögbrot.