138. löggjafarþing — 51. fundur, 18. des. 2009.
umhverfis- og auðlindaskattur.
257. mál
Frú forseti. Ég sagði áðan að mér fyndust þeir full niðurdregnir hv. þingmenn Tryggvi Þór Herbertsson og Birkir Jón Jónsson og standa sig vel í mótþróanum að geta meira að segja agnúast út í nafngift frumvarpsins. Það var þó hátíð hjá því sem heyra mátti áðan hjá hv. þm. Árna Johnsen. Ég tel að orðanotkun hans og málflutningur sé ekki svaraverður.