141. löggjafarþing — 56. fundur, 19. des. 2012.
greiðsla kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara.
498. mál
Frú forseti. Fyrir rúmu ári eða einu og hálfu ári gerði umboðsmaður skuldara áætlun, eins og allir góðir rekstraraðilar, um reksturinn næstu 12 mánuði, næsta ár. Núna er komið í ljós að gífurlegar upphæðir vantar í þessa áætlun. Ég legg til að umboðsmaður skuldara leiti til umboðsmanns skuldara um betri rekstur.