133. löggjafarþing — 58. fundur, 23. jan. 2007.
tilkynning um dagskrá.
Hæstv. forseti. Kjörbréfanefnd kom saman í dag og fór yfir kjörbréf Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, 2. varaþingmanns Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi, sem landskjörstjórn gaf út í dag. Kjörbréfanefnd leggur einróma til að kjör Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur verði samþykkt.