varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að 7. þm. Reykv. s., Guðlaugur Þór Þórðarson, geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Áslaug María Friðriksdóttir.
Kjörbréf Áslaugar Maríu Friðriksdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki tekið áður sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Áslaug María Friðriksdóttir undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]