Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 59. fundur,  3. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[02:17]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Ýmsir hv. þingmenn fylgjast með umræðum í gegnum sjónvarp eða tölvu, sumir hér í húsinu en sumir annars staðar. En rétt er að taka það fram að þetta mál hefur nú verið til umræðu hér í þinginu, aðallega á daginn, í meira en sjö daga.