153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

staðfesting kosningar.

[15:02]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu Hermanns Jónssonar Bragasonar sem 2. varaþingmanns á lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosninguna og kjörgengið og mælir einróma með staðfestingu kosningar Hermanns Jónssonar Bragasonar.