149. löggjafarþing — 63. fundur, 6. feb. 2019.
lengd þingfundar.
Herra forseti. Bara til að skýra málið, af því að þetta var ekki fullfrágengið á fundi þingflokksformanna, þá óska ég eftir því að fá upplýsingar frá forseta áður en gengið er til atkvæðagreiðslu hvort hann á við að fundurinn verði framlengdur, tillagan snúist um að framlengja fund til miðnættis eða lengur. Ég tel að það geti skipt máli varðandi niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.