152. löggjafarþing — 64. fundur, 7. apr. 2022.
skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja o.fl.
531. mál
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Ég held að það sé alla vega mjög mikilvægt að við hugum að því núna við vinnslu málsins hér á þingi að það verði send mjög skýr skilaboð um að þessi sjóður sé ekki ríkisapparat. Hvort það þurfi að gera með breytingum á lagatextanum eða hvort það nægi að gera það í lögskýringargögnum í nefndaráliti o.s.frv. þekki ég ekki, en ég held að það þurfi að fara mjög vel yfir þetta.