136. löggjafarþing — 64. fundur, 20. des. 2008.
eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara.
246. mál
Virðulegi forseti. Það var ekki röksemdafærslan fyrir því að ná árangri. Röksemdafærslan fyrir því að ná árangri var að flokkarnir hafa komið sér saman um veigamiklar breytingar á lögunum frá 2003 sem fela í sér að skerða forréttindi þessara hópa. Þetta er samkomulag á milli stjórnarflokkanna og þeir láta verkin tala.